Fræðslufundur – Félagsleg einangrun og hlutverk tengiráðgjafa

Öldrunarfræðafélag Íslands býður til rafræns fræðslufundar föstudaginn 11. apríl kl. 12:00–13:00.

Yfirskrift fundarins er:
„Félagsleg einangrun og hlutverk tengiráðgjafa“

Á fundinum mun Laufey Jónsdóttir, þroskaþjálfi og tengiráðgjafi hjá verkefninu Gott að eldast á Vesturlandi, fjalla um mikilvægi félagslegra tengsla og hvernig tengiráðgjafar geta stutt við eldri borgara sem glíma við félagslega einangrun. Erindið byggir á reynslu Laufeyjar af störfum sínum á Vesturlandi, þar sem ný nálgun í tengslamiðaðri þjónustu hefur verið mótuð og þróuð.

Fundurinn fer fram í fjarfundi og er öllum opinn. Skráning er ekki nauðsynleg.

🔗 Hlekk á fundinn má finna með því að smella hér.

Við hvetjum öll sem hafa áhuga á velferð eldra fólks – fagfólk, aðstandendur og almenning – til að taka þátt.

Deildu þessu á:

Facebook