27. NKG – Norðurlandaráðstefnan í öldrunarfræðum í Stokkhólmi 2024

27. Norðurlandaráðstefnan í öldrunarfræðum var haldin dagana 12.-14. júní 2024 við Karolinska Institutet í Stokkhólmi. Yfirskrift ráðstefnunnar var Ageing in a transforming world, sem mætti útleggja sem Að eldast í síbreytilegum heimi. Meginþemu ráðstefnunnar voru heilsufar og vellíðan aldraðra, tækni og nýsköpun, samfélagsleg áhrif og stefnumótun í málefnum sem varða eldra fólk.

Hennar hátign Silvía Svíadrottning setti ráðstefnuna við hátíðlega athöfn. Yfirgripsmikil dagskrá var í boði, þar á meðal lykilfyrirlestrar frá alþjóðlegum sérfræðingum á sviði öldrunarfræða, fyrirlestrar um nýjustu rannsóknir, veggspjaldakynningar með leiðsögn og málstofur um afmörkuð efni.

Meðal þess sem var til umfjöllunar voru rannsóknir á líkamlegri og andlegri heilsu aldraðra, áhrif lífsstíls og forvarna á heilsufar og nýjar aðferðir við að bæta lífsgæði aldraðra. Sagt var frá rannsóknum á áhrifum öldrunar á samfélög og efnahag, stefnumótun og löggjöf til að mæta þörfum aldraðra, fjölskyldutengslum og félagslegri einangrun.

Velferðartækni var gert hátt undir höfði enda fyrirséð að hana mun þurfa að nýta í auknum mæli til að mæta hækkandi meðalaldri þjóða um allan heim. Sagt var frá notkun nýrrar tækni til að styðja við aldraða heima, snjalllausnum og gervigreind í umönnun ásamt rafrænni heilsufarsskráningu og persónuvernd.

Ráðstefnan lagði áherslu á mikilvægi samvinnu milli landa og fagstétta til að mæta þeim áskorunum sem fylgja öldrun samfélagsins. Áhersla var lögð þörfina fyrir aukna fjárfestingu í rannsóknum og þróun, sem og mikilvægi þess að hvetja unga fagaðila og rannsakendur til að sérhæfa sig í öldrun. Einnig var lögð áhersla á mikilvægi félagslegra tengsla og stuðnings við aldraða til að bæta lífsgæði þeirra og þeirra nánustu.

Meðal þess sem stóð upp úr að mati höfundar voru eftirfarandi atriði (tekið skal fram að listinn er ekki tæmandi og afar erfitt var að velja úr):

Aðalfyrirlestur Vania de la Fuente-Núnez sem rannsakar aldursfordóma (e. ageism) og áhrif þeirra á lýðheilsu. Hún hefur verið virkur talsmaður gegn aldursfordómum á alþjóðavettvangi og hefur meðal annars tekið þátt í verkefnum á vegum Sameinuðu þjóðanna (UN) tengdum heilsu og öldrun. Í erindi sínu fjallaði hún um hvernig aldursfordómar hafa víðtæk áhrif á hugsanir, tilfinningar og gjörðir bæði hjá einstaklingum og samfélögum í heild, og lýsti þeim sem lýðheilsuvandamáli sem þarf að bregðast við.

Marijke Veenstra, rannsóknarprófessor við Heilsuþjónusturannsóknareininguna á Akershus háskólasjúkrahúsinu í Noregi (n. Helse- og tjenesteforskningsavdelingen ved Akershus universitetssykehus), hélt fyrirlestur sem bar titilinn “Tackling social inequalities at older ages – A battle worth fighting?”

Í fyrirlestrinum fjallaði Veenstra um hvernig samfélagslegur ójöfnuður hefur áhrif á eldri einstaklinga, jafnvel á Norðurlöndunum þar sem jöfnuður hefur lengi verið lykileinkenni. Hún dró saman nýjustu rannsóknarniðurstöður sem sýna hvernig ójöfnuður birtist á síðari árum og hvaða kerfi hafa áhrif á möguleikann á að eldast vel. Veenstra lagði áherslu á mikilvægi þess að rannsaka og takast á við þessar áskoranir til að tryggja betri lífsgæði fyrir alla eldri borgara.

Teppo Kröger hlaut Sohlberg-verðlaunin árið 2024 á 27. Norðurlandaráðstefnunni í öldrunarfræðum fyrir framúrskarandi framlag sitt til öldrunarfræða á Norðurlöndunum. Verðlaunin eru veitt leiðandi rannsakanda í öldrunarfræðum og er viðurkenningin í formi veglegrar peningaupphæðar. Teppo hefur verið frumkvöðull í rannsóknum á öldrun og umönnun, og hann hefur einnig leitt fjölmörg innlend og alþjóðleg rannsóknarverkefni. Rannsóknir hans hafa veitt mikilvæga innsýn í þjónustu við aldraða, þar sem tekið er tillit til allra hagsmunaaðila: viðkvæmra aldraðra, fjölskyldna þeirra og launaðra umönnunaraðila. Við óskum Teppo innilega til hamingju, hann er vel að þessu kominn.

Veglegur ráðstefnukvöldverður fór fram í Münchenbryggeriet sem er eitt af einkennandi kennileitum Stokkhólms og stendur í hjarta borgarinnar við strandlengju Riddarfjärden. Þetta sögufræga hús var áður bjórverksmiðja þar sem bjór var framleiddur í yfir hundrað ár. Í dag hefur Münchenbryggeriet endurlífgað gamlar hefðir með smáframleiðslu á lífrænum bjór en aðallega er húsið notað sem nútímalegt ráðstefnu- og viðburðahús.

Ráðstefnan var afar vel heppnuð. Hana sóttu tæplega 800 fagaðilar alls staðar að úr heiminum. Þáttakendur frá Íslandi voru 28 sem verður að teljast nokkuð gott miðað við höfðatölu. Áhugasamir geta nálgast nánari upplýsingar og dagskrá ráðstefnunnar á NKG 2024 vefsíðunni .

Norðurlandaráðstefnan í öldrunarfræðum er alla jafna haldin á tveggja ára fresti og stefnir saman leiðandi sérfræðingum á sviði öldrunarfræða til að deila nýjustu rannsóknum og framþróun í greininni. Næsta ráðstefna verður í University of Jyväskylä í Finnlandi 7.-9. júní 2027.

Fyrir hönd stjórnar Öldrunarfræðafélags Íslands,

Sirrý Sif Sigurlaugardóttir, félagsráðgjafi og doktorsnemi við Háskóla Íslands.

Deildu þessu á:

Facebook