2.mars 2018
Ágæti félagsmaður
Aðalfundur Öldrunarfræðafélagsins verður haldinn fimmtudaginn 22. mars 2018 kl. 16:00 á Hrafnistu í Reykjavík, sal Sjómannadagsráðs
Dagskrá fundar
- Skýrsla stjórnar og vísindasjóðs.
- Reikningar félagsins lagðir fram til samþykktar
- Kosning stjórnar félagsins, sbr. 6.gr.
- Kosning stjórnar vísindasjóðs félagsins, sbr. 8.gr.
- Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga til eins árs
- Árgjald ákveðið
- Lagabreytingar, sbr. 10.gr.
Lagt er til að í grein 6 verði bætt við lið 6 sem er svo hljóðandi: Stjórn skal skipuð af fulltrúum að minnsta kosti 4 fagstétta innan öldrunarþjónustunnar. Undantekningar má gera ef ekki tekst að skipa í öll stjórnarsæti.
Lagt er til að grein 4 liður undir dagskrá aðalfundar sem er svo hljóðandi: 1. Skýrsla stjórnar, vísindasjóðs og ritnefndar verði breytt í : 1. Skýrsla stjórnar og vísindasjóðs.
Lagt er til að liður 5 í 4.grein verð tekinn út: 5. Kosning ritnefndar, sbr.9.grein.
- Önnur mál
Að loknum aðalfundi verður boðið upp á veitingar og einnig fer fram úthlutun styrkja úr Vísindasjóði félagsins.
Fyrir hönd stjórnar Öldrunarfræðafélags Íslands
Sigurbjörg Hannesdóttir
formaður